Auglýsing

Innskráningar kubbur

Blesssss

02. október 2006 klukkan 23:50

Ég stend ekki í þessu myndaveseni lengur..
aftur farin yfir á gamla góða blog.central

blog.central.is/berglind89

Berglind Hermannsdóttir

Born to try - Delta Goodrem

30. september 2006 klukkan 21:59
Blelli...

hress laugardagur, alveg virkilega hress.. Öskrandi Er að lesa sögu og búin að vera að því meira og minna síðan kl 1 .. það er virkielag ekki gott að lenda aftarlega í þessum kapphlaupi við heimalærdóminn.. endar sjaldanast vel og ég er núna eftir á í líffr, efnafr og sögu.. Jeeeez

Reyni að plögga þessu bara núna um helgina..

Svo þarf eg að lesa alla íslendingaþættina.. oh fokk it.. jæja skal ekki gera ykkur þunglynd kæru lesendur..

En ég ætla nú samt að rífa mig uppúr þunglyndinu og hoppa í world class eftir smá..
Svaddalegt hvað það virðist alltaf lítill tími til þess nú orðið..

Gubbupest á gangi marr.. be aware.. ég, sem gríp allar pestir á lofti, er EKKI á leiðinni að fá þessa.. vibbi alger..

Fór í gærkveldi í pool og þythokký með Ella og Krissu.. get ekki sagt að eg hafi slegið í gegn þar sem ég tapaði öllum leikjum sem ég tók þátt í.. ég beið bara eftir að "the one and only" myndi birtast á hverri stundu ( heppin í spilum/leikjum óheppin í ástum og vice versa) ...
Svo rúntuðum við bara smá hring og svo heim að lúlla mér í nýju sænginni og með nýju koddana mína...
Byrjaði að láta klukkuna hringja á mig kl 10 og reif mig loks uppúr rúminu um kortér í 12.. slaaaapppt...

Eftir skóla í gær ætlaði ég að vera ýkt svöl á því og sækja Pétur Má í skólann... á næga innistæðu fyrir einu sms-i... svo svarar hann því og segist vera á leið heim.. og ég þá komin inní MH.. hann semsagt labbaði útúr skólanum þegar ég var að labba inn, bara á allt öðrum stað.. :s Ég hitti Klöru gellz.. en hún átti ekki inneign þannig að ég bara ojæja.. og eftir að hafa spjallað lidt við hana fór ég af stað heim til Pez, villtist smá og komst svo að lokum heim til hans og heilsaði uppá dúddann... Fórum svo og keyptum okkur ís og svo skutlaði ég honum bara heim... og ég heim að læra.. svaddalega dugleg marrr... alveg....

Planið fyrir kvöldið óljóst..
Ætla ða far að skella mer í klassan.. orðin heilaskemmd á öllum þessum stöfum sem ég hef lesið í dag.. geez

Blelli

DSC00145

DSC00152

DSC00165

Ohh mig langar aftur til mallorca! Yndislegur staður
DSC01213
Ég meian hver stenst t.d. Konstantin

DSC01193
Eða Morten....

Berglind Hermannsdóttir

Thriller - Michael Jackson

28. september 2006 klukkan 01:32
Ég er ýkt pirruð á þessu myndavaseni maður!
spurning um b.c. bara aftur.. pfft

Í dag var nettur dagur maður.. gat, bíómynd, leikfimi ahh..
Eva er tuddi.. en samt bara krúttlegur tuddi.. henni tókst að klemma fingurinn á mér á milli síns og hennar kylfu í bandý.. og ái maður.. náttla ekker thenni að kenna.. en ég hélt ég hefði brákast eða eitthvað.. svo var nú ekki og litli hluturinn sem gerir mig að prímata er í góðu lagi núna :)

Syttist í árshátíðina.. það verður frkn gaman :D úff.. úff.. úff...

Mig langar svo á að fara á Á Móti Sól og Dilana um helgina.. asnalega aldurstakmark..

en æji ég er hætt
ætla að nýta tímann betur!
Berglind Hermannsdóttir

Surfin´Safari - The Beach Boys

26. september 2006 klukkan 21:52
Til hamingju með daginn Dabbi :D
DSC00484

Kjeeelllinn orðinn jafngamall og við hin... 

Ég er auli.. ég var komin alla leið heim þegar ég fattaði að ég hafði gleymt lyklunum mínum heima í morgun... var sem betur fer á bíl og eyddi því um einum og hálfum tíma frá skóla, til mömmu, heim, til mömmu, heim... skemmtilegur rúntur alveg hreint...

Annars þá er bara bilað veður úti.. fáránlega gott.. Ætli það sé Halldís að senda okkur hlýja strauma frá Spáni, hlýtur að vera...

Ef ég væri klár myndi ég nýta tímann núna og læra.. en neeeiiii.. ég er ekki það klár...

Annars er bara allt við það sama...
Skóli, borða, sofa ... svona hin daglega rútína...

Ætla að reyna að skella mér í Klassann á eftir þannig að ég ætla að reyna að drífa í því að læra fyrst...

Bleelllii
DSC00361
Berglind Hermannsdóttir

My guy - Diana Ross & The Supremes

26. september 2006 klukkan 03:16
Jææææja gott fólk..

Þá er enn einn mánudagurinn liðinn, jafn óviðburðarríkur og hinir fyrri.. Bara sama gamla tuggan...
Nema það að píurnar komu í heimsókn, mikil gleði þar á bæ... :p

Eftir skóla fór ég til ömmu, sem ég hef ekki gert lengi.. Þangað kom svo hún Magga, vinkona ömmu af 4. hæð.. Hún sagði mér af því að hún lenti alltaf í einhverjum vandræðum með geislaspilarann. Eins góðhjörtuð og ég nú er bauð ég fram aðstoð mína .. labbaði uppá 4. hæð og komst að rót vandans... hún sneri disknum vitlaust takk fyrir. Ég þurfti að taka á honum stóra mínum til þess að hlæja ekki að greyið konunni...

En svo leið mér eins og ég væri stödd á umferðarmiðstöðinni .. Fyrst hringdi dyrabjallan, það var hún Ella frænka að koma í heimsókn, svo 5 mín seinna hringdi hún aftur, þá var það hún Didda frænka, svo 5 mín seinna aftur, þá var það hún Auður, Eva María og Sara Lind, svo enn einu sinni 5 mín seinna, þá var það pabbi og svo 5 mín á eftir því kom mamma inn, dinglaði reyndar ekki því að hún er lyklabarnið í familíunni... :p Semsagt... mjöög margir gestir á stuttum tíma..
Þetta var nú sérdeilis skemmtileg saga fannst ykkur ekki?

En já, svo fór e´g bara heim að læra, búin að vera askolli lengi með þennan fjanda....

Og ekki bestnar það nú í næstu viku maður FOKK!!
satistar þessir kennarar...
mánud: fyrirlestrar fyrir Gísla og Hrefnu
þriðjud: líffræðipróf
miðvikud: stærðfræðipróf
fimmtud: spænskupróf
föstud: sögupróf

Og ef við tékkum á því hvað ég kann þá er það ... uhm ja, alveg rétt.. EKKI RASSGAT.. æji god damn it.. svo þarf ég líka að lesa íslendingaþætti um helgina.. ég er screwed... :/ en.. ég ætla sko ekki að læra meira í dag.. er orðin gráhærð..

Bless.. orðin niðurdregin af þessu bloggi...
:(
Berglind Hermannsdóttir

BassHunter - Boten Anna

23. september 2006 klukkan 23:12
Það er einhver andskotinn að myndunum mínum... ekki sniðugt miðað við allan þann tíma sem fór í að setja þær inná...

Er að skána af veikindunum.. fer í vinnuna á morgun.. (jeijj.. :/)
Búin með ritgerð, villuyfirlit, spænsku vb, stæ,  - duglega ég...

Mér er skítkalt hérna maður

Hef aldei verið jafnlengi heima hjá mér samfleytt.. :/ efast um að ég nenni útúr húsi aftur.. er orðin myglaðari en mygluostur hérna... (ahh.. góð líking berglind.. góð líking)

er farin .... OTH eða eitthvað álíka skemmtilegt... æjæjæjæj

blee









hefði viljað vera þarna




Ok þetta er orðið svooolítið stelpulegt blogg hjá mér....

Bleellli
Berglind Hermannsdóttir

Lithium - Nirvana

23. september 2006 klukkan 03:15
Okei, þetta er í fyrsta sinn í soldinn tíma sem ég er heima hjá mér á föstudagskvöldi. Ég verð að segja eins og er að sjónvarpsdagskráin er til skammar... Jesús.. það er EKKERT í sjónvarpinu.. og e´g er búinað horfa á allar spólur og DVD á heimilinu einum of oft..

ohh
Berglind Hermannsdóttir

Proud Mary - CCR

22. september 2006 klukkan 15:34
Alltaf tekst mér að velja skemmtilegustu dagana til að verða veik.. !
Fór að sofa kl hálf 8 í gærkveldi, ætlaði rétt svo að leggja mig. Var með þvílikan hausverk. En nei, vaknaði svo kl 2 og fór og burstaði mig og svoleis.. Steinsvaf svo til kortér í 7 þegar mamma vakti mig og spurði hvort ég færi í skólann. Ég ákvað að mæla mig, sem ég geri aldrei nota bene.. og var með þvílíkan hita.. Þannig að ég ákvað bara að "stay in" ...

Akru verð ég alltaf veik á vinnuhelginni minni.. ekki séns að ég hringi mig aftur inn veika á morgun .. hversu góður starfskraftur er ég?

Ætla að reyna að byrja á ritgerðinni..

En mér er svo frkn heitt maður!

Mér leiðist..
Bless
Berglind Hermannsdóttir

ZZ Top - Bad to the bone

21. september 2006 klukkan 21:56

Mér leiðast strætóar..
Mér leiðast pirraðir strætóbílstjórar enn meira..
Það fer virkilega í taugarnar á mér þegar þeir gleyma að stoppa, eða opna að aftan og það nýjasta er að klemma fólk á milli hurðanna.. C´mon.. það er nú ekki svo erfitt að vera strætóbílstjóri.. hvað með að leggja metnað sinní það að vera góður í því... þú þarft einfaldlega eftirfarandi:

-Segja góðan daginn
-Stoppa þegar fólk ýtir á takkann
-Opna réttar hurðir
-Passa að loka ekki fyrr en fólk er KOMIÐ út

Ekki það að þetta seinast nefnda hafi komið fyrir mig.. en það var gamalt konugrey sem klemmdist á milli og æpti þessi ósköp.. grey konan.. Þetta var pííínu fyndið.. bara pínu.. Saklaus

Nýjasta trendið hjá mér er að fá 5 í prófum.. Alveg virkilega skemmtileg tala gott fólk.. sýnir að þú hafir náð um helmingi efnisins... Jibbí... Óákveðinn
En þessi próf voru Stærðfræði lesin: 5... stærðfræði ólesin: 5,3 ... (sem er reyndar mjööög gott að mínu mati miðað við hvað mér gekk hryllilega.. fékk hin ólíklegustu stig verð ég að segja... )
Svo var það djööös efnafræðin.. eitthvað skítlétt krossapróf.. en nei, ég þurfti að fá 4/8 (fyrir ykkur sem eruð svipað góð í stærðfræði og ég þá er það 5)... Úff skammast mín bara.. þið latið þetta ekki fara neitt lengra er það? Nei nei sko.. málið er... að ég gerði einn útreikning alveg réttan og SÝNDI útreikninginn.. en krossaði í vitlausan reit.. las + og - vitlaust.. úff.. þannig að ég hefði fengið 5/8 ( 6,3 )

Mikið er nú gaman að skrifa/lesa um skólann minn... Ullandi

Eva var voðalega skemmtileg við mig í dag og potaði í mig stanslaust ... STANSLAUST í 40 mínútur.. með penna.. össssss...  En ég var svo úber töff að ég bara  Svalur ( ég er að uppgötva broskallana... sko mig)

Það er næstum ekki neitt að læra.. ætti e´g að nýta tímann og læra það sem ég kann ekki? T.d. efnafr, líffr, sögu og stærðfræði.. æji nei takk... sleppum því bara...

Ég ætla að fara að gear eitthvern óskunda...

DSC00331
Eva potari!

DSC00362

DSC00339

Berglind Hermannsdóttir

99 red balloons - Nena

20. september 2006 klukkan 00:41

Jæææææja...

Hvað segja bændur!?

Mér finnst alveg gífurlega sorglegt að vera að fara í stærðfræðipróf á morgun. Kann ekkert í þessu, og því meira sem ég les því ruglaðari verð ég.. FOKK it... svo á ég eftir að læra þessar blessuðu skilgreiningar.. 6 eða eitthvað svoleis.. á skiluru kínversku fyrir mér.. og ég ÆTLA að vera hætt að læra kl hálf 10 eða 10.. Varð bara að taka mér smá pásu núna.. var að fara að gráta þetta var svo leiðinlegt...
Ég er svo góður námsmaður.. jæks sko..

Árni og Keit komin með bílpróf. Til lukku með það... Árni var leiðinlegur og bauð mér ekki í bíltúr! En keit var náttúrulega almennileg og kom og sótti mig í gærkvöldi og svo Möggu og við rúntuðum útum allar trissur.. Brjálaður kaggi með "gamall maður með pípu"-flautu.. var komin heim um kl hálf 1 í nótt og dó úr þreytu í morgun..
Árni?!?

Svo komu sauðirnir í heimsókn í dag, þær Keit og Krissa... ávallt gaman... hahahahah sauðir!!!!
Á von á annirri heimsókn á föstud. :p Mikið hlakka ég nú til að fá að endurlauna þeim greiðann og fara í heimsókn til þeirra föstud eftir svona 3 vikur eða eitthvað.. já.. nákvæmelga.. föstud eftir 3 vikur.. hahahah :D

En... ég ætla að fara að lesa skilgreiningar...
Semsagt... ef þið eruð í leit að stuði.. þá er ég í brjálaðri stemningu hérna að læra föll... :(
Bless bless





Berglind Hermannsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvort er heitara um ţessar mundir?

Leit

Leikur dagsins